Verk Vest auglýsir eftir skrifstofustjóra með áherslu á vinnustaðaeftirlit
Verkalýðsfélag Vestfirðinga (Verk Vest) auglýsir eftir skrifstofustjóra með áherslu á vinnustaðaeftirlit hjá starfstöð félagsins á Ísafirði.
Ábyrgðarsvið:
- Aðstoð og útreikningar í vinnuréttindamálum
- Almenn þjónusta við félagsmenn
- Umsjón með vinnustaðaeftirliti og úrvinnslu mála
- Umsjón með netmiðlum félagsins
- Skýrslugerð tengd kjaramálum
- Aðstoð við innheimtu og rafrænum skráningu
- Símsvörun og önnur tilfallandi skrifstofustörf
Hæfniskröfur:
- Áhugi á félagsstörfum og rík réttlætiskennd
- Góðir samskiptahæfileikar og framúrskarandi þjónustulund
- Hagnýt menntun sem nýtist í starfi
- Góð tölvukunnátta og góð færni í upplýsinga og tæknimálum
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Gott vald á íslensku og ensku. Önnur tungumál kostur
- Reynsla af uppgjörsvinnu og skýrslugerð
- Þekking á Dk bókhaldskerfi er kostur
Um 100% starf er að ræða, æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 1. september 2025.
Nánari upplýsingar um starfið og launakjör gefur Finnbogi Sveinbjörnsson, á netfanginu finnbogi@verkvest.is eða í síma 456-5190. Öllum umsóknum verður svarað en áskiljum okkur þann rétt að hafna öllum ef enginn umsækjandi telst hæfur í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 18. maí nk.