Translate to

Fréttir

Verk Vest færir Lúðrasveit TÍ einkennisjakka að gjöf

Lúðrasveiti Tónlistarskóla Ísafjarðar Lúðrasveiti Tónlistarskóla Ísafjarðar
Páll Gunnar Loftsson, félagi í LTÍ,  og Finnbogi Sveinbjörnsson formaður Verk Vest Páll Gunnar Loftsson, félagi í LTÍ, og Finnbogi Sveinbjörnsson formaður Verk Vest
Á aðalfundi Verk Vest fyrir tæpu ári síðan var samþykkt tillaga um að Lúðrasveit Tónlistaskóla Ísafjarðar yrði færður einkennisfatnaður að gjöf. Lúðrasveitin hefur alltaf verið boðin og búin að taka þátt í hátíðarhöldum á baráttudegi launþega og jafnan gengið í broddi fylkingar. Sveitin spilar oft útivið og á Íslandi háttar málum þannig að ekki er á vísann að róa þegar kemur að veðrinu og því betra að vera vel búinn. Forsvarsmenn Tónlistaskóla Ísafjarðar voru að vonum ánægðir með framtakið og ekki var annað á félögum í sveitinni að heyra en þeir væru það líka.
Deila