Translate to

Fréttir

Verk Vest gefur út upplýsingarit vegna gjaldþrota

Verk Vest hefur gefið út upplýsingarit fyrir félagsmenn um það ferli sem fara þarf í verði fyrirtækið sem þeir vinna hjá gjaldþrota. þar er reynt að veita svör við ýmsum spurningum sem launamenn þurfa hafa í huga við gjaldþrot vinnuveitanda eins og t.d. hvort starfsmenn séu bundnir af ráðningarsamningi við gjaldþrot ? Hverjar eru forgangskröfur í þrotabú, Ábyrgðasjóð launa, hámarksábyrgðir og afhverju taki svona langan tíma að afgreiða launakröfur svo eitthvað sé nefnt. Hægt er að nálgast upplýsingaritið hér eða koma við á skrifstofunni og sækja eintak.
Deila