Verk Vest og Fræðslumiðstöðin gera samstarfssamning
Verkalýðsfélagi Vestfirðinga hefur borist öflugur liðsauki sem er hún Kristín Sigurrós Einarsdóttir, en á dögunum undirrituðu Verkalýðsfélag Vestfirðinga og Fræðslumiðstöð Vestfjarða samstarfssamning um samrekstur starfsstöðvar Fræðslumiðstöðvar og Verk Vest á Hólmavík. Með þessu er félagið að styrkja tengslanet sitt á Ströndum og í Reykhólasveit. Félagið hefur hefur töluverðar væntingar af samstarfinu við Fræðslumiðstöðina, en megin tilgangur þess er að tengja félagið betur við félagsmenn á þessu svæði og ná betri tökum á fræslumálum innan félagsins.
Kristín verður í 30% starfi hjá Verkalýðsfélagi Vestfirðinga á móti störfum hennar hjá Fræðslumiðstöðinni og verður hún með aðsetur í Þróunarsetrinu á Hólmavík. Ætlunin er að Kristín taki fræðslumál félagsins föstum tökum, sérstaklega verður horft til kjarasamningsbundinnar fræðslu ásamt trúnaðarmannafræðslu félagsins. Ekki er annað að heyra á félagsmönnum okkar á Ströndum og Reykhólasveit en að þessi viðbót við þjónustu sé tekið fagnandi, enda Kristín vel kynnt á svæðinu.