Verkalýðsfélag Vestfirðinga auglýsir eftir starfsmanni í bókhald á skrifstofu félagsins á Ísafirði
Ábyrgðasvið:
- Bókun reikninga
- Afstemmingar og uppgjör
- Umsjón með launabókhaldi
- Skýrslugerð
- Umsjón með innheimtu og rafrænum skráningum
- Önnur tilfallandi skrifstofustörf
Hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af bókhaldsstörfum, uppgjörsvinnu og afstemmingum er skilyrði
- Góð þekking á TOK bókhaldskerfi og rafrænum skráningarkerfum er kostur
- Gott vald á íslensku og ensku. Önnur tungumál kostur
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góðir samskiptahæfileikar og rík þjónustulund
Um fullt starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar veitir:
Kristín Guðmundsdóttir, kristin@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 10. mars nk.