Vextir sjóðfélagalána hjá lífeyrissjóðnum Gildi lækka
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs hefur ákveðið að lækka vexti á lánum til sjóðfélaga frá og með 5. janúar 2018.
Breytilegir vextir verðtryggðra grunnlána lækka úr 3,25% í 3,05% og verðtryggðra viðbótarlána lækka úr 4,00% í 3,80%.
Fastir vextir verðtryggðra grunnlána lækka úr 3,60% í 3,55% og verðtryggðra viðbótarlána úr 4,35% í 4,30%.
Breytilegir vextir óverðtryggðra grunnlána lækka úr 5,70% í 5,55% og óverðtryggðra viðbótarlána úr 6,45% í 6,30%.
Kjör sjóðfélagalána hjá Gildi-lífeyrissjóði eru áfram með þeim hagstæðustu sem bjóðast á íbúðalánamarkaði.
Grunnlán allt að 65% lánshlutfall |
Viðbótarlán 65 - 75% lánshlutfall |
|
Verðtryggt - breytilegir vextir |
3,05% | 3,80% |
Verðtryggt - Fastir vextir |
3,55% | 4,30% |
Óverðtryggt - breytilegir vextir |
5,55% | 6,30% |