Translate to

Fréttir

Við viljum vinna - ályktun miðstjórnar ASÍ

Á fundi miðstjórnar miðvikudaginn 10.febrúar var aðgerðarleysi stjórnvalda gagnvart launþegum í landinu mjög til umræðu. Ekkert ber á þeim sértæku úrræðum sem skuldsettum heimilum hafði verið lofað og eru þolmörk margra heimila löngu brostin vegna þessa. Þá hefur lítið borið á fyrirheitum til að koma hjólum atvinnulífsins almennilega í gang, þar situr allt við sama keyp, nánast engar framkvæmdir á vegum hins opinbera eða sveitarfélaga og niðurskurðarhnífurinn á lofti. Á fundinum var samþykkt að eftirfarandi ályktun yrði send út.

"Atvinnuleysi er böl. Það er því forgangsmál að stuðla með öllum tiltækum ráðum að aukinni atvinnu um leið og við verjum störfin. Alþýðusambandið krefst verklegra framkvæmda til að mæta miklum samdrætti í byggingariðnaði og mannvirkjagerð því þar er atvinnuleysið mest. Slíkar framkvæmdir munu einnig hleypa auknu lífi í fjölmargar greinar atvinnulífsins sem þjónusta byggingariðnað og mannvirkjagerð með beinum og óbeinum hætti.

Ríkisstjórnin verður að greiða götu þeirra stórframkvæmda sem nú eru í undirbúningi auk þess að ráðast í framkvæmdir á eigin vegum. Bent hefur verið á fjölmörg verkefni sem ráðast má í á næstu mánuðum og misserum af hálfu stjórnvalda s.s. viðhaldsverkefni vegna opinberra bygginga um land allt, vegabætur, samgöngumiðstöð, byggingu hjúkrunarheimila og nýjan Landspítala.  Þetta eru verkefni sem hefja má tafarlaust vinnu við."

Deila