Translate to

Fréttir

Viðhald og endurbætur eldri timburhúsa - námskeið á Patreksfirði

Fallega uppgert hús er sannkölluð bæjarprýði. ljósm. Rúnar Már Jónatansson Fallega uppgert hús er sannkölluð bæjarprýði. ljósm. Rúnar Már Jónatansson
Dagana 5. og 6. desember nk. mun Fræðslumiðstöð Vestfjarða í samstarfi við Húsafriðunarnefnd og VerkVest halda námskeið á Patreksfirði ætlað húsasmiðum.

Á námskeiðinu verður fjallað um undirstöður og burðarvirki eldri timburhúsa. Farið er yfir frágang bæði utan- og innanhúss. Skoðuð eru gömul hús sem hefur verið gert við og hús sem þarfnast viðgerða. Einnig er farið yfir undirbúning viðgerða, sögu og þróun húsbygginga á Íslandi. 
Ávinningur:
  • Lögð er áhersla á að gert sé við gömul hús með sömu aðferðum og frágangi og þegar þau voru byggð á sínum tíma.
  • Þátttakendur fá góða yfirsýn á það hvernig gömul hús voru byggð.
  • Þátttakendur fá dýrmæta þekkingu sem nýtist til viðgerða og endurbóta gamalla húsa.

Skráning fer fram á vef Fræðslumiðstöðvarinnar.

Deila