Viðhald og endurbætur eldri timburhúsa - námskeið á Patreksfirði
Á námskeiðinu verður fjallað um undirstöður og burðarvirki eldri timburhúsa. Farið er yfir frágang bæði utan- og innanhúss. Skoðuð eru gömul hús sem hefur verið gert við og hús sem þarfnast viðgerða. Einnig er farið yfir undirbúning viðgerða, sögu og þróun húsbygginga á Íslandi.
Ávinningur:
- Lögð er áhersla á að gert sé við gömul hús með sömu aðferðum og frágangi og þegar þau voru byggð á sínum tíma.
- Þátttakendur fá góða yfirsýn á það hvernig gömul hús voru byggð.
- Þátttakendur fá dýrmæta þekkingu sem nýtist til viðgerða og endurbóta gamalla húsa.
Skráning fer fram á vef Fræðslumiðstöðvarinnar.