Viðræðum við sveitafélög slitið
Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands sleit viðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga síðdegis í gær og hefur deilunni verið vísað til ríkissáttasemjara. Mikill ágreiningur hefur verið um launalið samningsins og eru samningsaðilar ósammála um hvernig beri að meta og heimfæra launatölur úr þeim kjarasamningum sem voru gerðir fyrir ríkisstarfsmenn inn í kjarasamning starfsmanna sveitafélaga. Ljóst má vera að sú staða sem komin er upp vegna ágreinings VLFA um túlkun SALEK samkomulags spili einnig inn í viðræðurnar. Frekari fundir hafa ekki verið boðaðir í deilunni, en með því að viðræðum hefur verið slitið þá færast þær undir verkstjórn Ríkissáttasemjara sem mun boða næsta fund.
Rétt er að benda á að flóafélögin hafa einnig slitið viðræðum við samninganefnd sveitafélaga og er þá komin upp mjög sérstök staða innan flóafélaganna þar sem góður gangur er í kjaraviðræðum Eflingar við Reykjavíkurborg.