Translate to

Fréttir

Viðræðum við sveitafélög slitið

Samninganefnd SGS í karphúsinu fyrr á þessu ári Samninganefnd SGS í karphúsinu fyrr á þessu ári

Samn­inga­nefnd Starfsgreinasambands Íslands sleit viðræðum við Sam­band ís­lenskra sveit­ar­fé­laga síðdeg­is í gær og hef­ur deil­unni verið vísað til rík­is­sátta­semj­ara. Mikill ágreiningur hefur verið um launalið samn­ings­ins og eru samningsaðilar ósammála um hvernig beri að meta og heimfæra launatölur úr þeim kjarasamningum sem voru gerðir fyrir ríkisstarfsmenn inn í kjarasamning starfsmanna sveitafélaga. Ljóst má vera að sú staða sem komin er upp vegna ágreinings VLFA um túlkun SALEK samkomulags spili einnig inn í viðræðurnar. Frekari fundir hafa ekki verið boðaðir í deilunni, en með því að viðræðum hefur verið slitið þá færast þær undir verkstjórn Ríkissáttasemjara sem mun boða næsta fund.

Rétt er að benda á að flóafélögin hafa einnig slitið viðræðum við samninganefnd sveitafélaga og er þá komin upp mjög sérstök staða innan flóafélaganna þar sem góður gangur er í kjaraviðræðum Eflingar við Reykjavíkurborg.

Deila