Translate to

Fréttir

Víðtæk samstaða innan ASÍ um samkomulag við SA

Mikill meirihluti samninganefnda innan landsambanda ASÍ samþykktu samkomulag sem samninganefnd ASÍ skrifaði undir við Samtök atvinnulífsins (SA) þann 25. júní síðast liðinn. Samkvæmt því munu almenn taxtalaun því hækka um kr 6.750 frá 1. júlí 2009,  taxtalaun skrifstofufólks og faglærðra iðnaðarmanna hækka um kr 8.750.  Gangi aðgerðir ríkisstjórnarinnar eftir þannig að svigrúm myndist til vaxtalækkana mun það ýta enn frekar undir að samkomulagið við SA haldi. Að því gefnu munu almenn taxtalaun því hækka aftur þann 1. nóvember um kr 6.750 og taxtalaun skrifstofufólks og faglærðra iðnaðarmanna um kr 8.750 þá munu þeir launahópar sem ekki eru á taxtalunum fá 3,5% hækkun að því gefnu að laun þeirra hafi ekki hækkað frá 1. janúar - 1. nóvember 2009. Aðrar kjarabreytingar sem áttu að taka gildi þann 1. janúar 2010 munu þá taka gildi þann 1.júní 2010 má þar nefna að taxtalaun hækka um kr 6.500.

Eins og áður hefur komið fram hérna á vefnum þá fjallaði samninganefnd Verkalýðsfélags Vestfirðinga um samkomulagið sem og Stöðugleikasáttmálann á fundi þann 25. júní síðast liðinn.


Niðurstaða samninganefndar Verkalýðsfélags Vestfirðinga

  

"Á fundi stjórnar og trúnaðarráðs sem var haldinn þann 25. júní sl. var lög fram tillaga þess efnis að það yrði á ábyrgð samninganefndar félagsins að taka ákvörðun um samkomulag um breytingar á kjarasamningi aðildarfélaga ASÍ og SA sem var undirritað af samninganefnd ASÍ 25. Júni 2009.  Tillagan var samþykkt samhljóða.

 

Fundarmenn töldu að af mörgum slæmum kostum þá hefði versti kosturinn verið að standa uppi samningslaus á þessum tímapunkti. Þá var lögð áhersla á að með samkomulaginu væri verið að verja stöðu þeirra tekjulægri.  Í ljósi þessa var það samróma ákvörðun samningarnefndar félagsins að samþykkja áðurnefnt samkomulag sem tilkynnist hér með. Þá var einnig bókaður stuðningur við störf samninganefndar ASÍ í aðdraganda samkomulagsins."

Niðurstaðan nefndarinnar var síðan send til þeirra landssambanda sem félagið er aðili að og eiga aðild að samkomulaginu. 
Sjá einnig frétt á heimasíðu ASÍ

Deila