Translate to

Fréttir

Viltu komast á Þing hjá ASÍ- UNG?

Verk Vest augslýsir eftir ungu fólki á aldrinum 18 - 35 ára til að taka þátt í 11. þingi ASÍ - UNG.

Viðburðurinn er ætlaður öllu ungu fólki hjá Verk Vest sem eru 18-35 ára, og hafa áhuga á starfi stéttarfélaga.

Tími: 17. október 2025

Staðsetning: Haldið á Hótel Beraya í Reykjavík. Verk Vest greiðir ferða-fæðis- og gistikostnað. 

Gisting: Hótel Beraya í Reykjavík býður þátttakendum gistingu með morgunverði sem Verk Vest sér um að bóka.

Matur: ASÍ-UNG býður þátttakendum í sameiginlegan kvöldverð á veitingastaðnum SATT að þing loknu. 

Skráning: Þátttakendur þurfa að tilkynna þátttöku til Verk Vest sem sendir inn skráningu fyrir sína fulltrúa. 

Allar nánari upplýsingar má fá hjá skrifstofum Verk Vest á Ísafirði og Patreksfirði í síma 4565190 eða á postur@verkvest.is  

Verk Vest hvetur unga félagsmenn til þátttöku!

Deila