Translate to

Fréttir

Vörukarfan ýmist hækkar eða lækkar !

Vörukarfa ASÍ hefur ýmist hækkað eða lækkað hjá matvöruverslunum milli verðmælinga verðlagseftirlitsins í júní og nýjustu mælingarinnar nú í september. Á þessu þriggja mánaða tímabili hækkaði vörukarfan mest hjá 10-11 um (2,0%), Víði um (1,9%), Nettó um (0,8%), Samkaupum-Strax um (0,4%) og Nóatúni um (0,1%). Verð vörukörfunnar hefur lækkað töluvert á milli mælinga hjá Krónunni eða um (-5,5%), Hagkaupum um (-3,7%), Samkaupum-Úrvali um (-2,6%) og Bónus um (-1,5%). Vöruflokkurinn mjólkurvörur, ostar og egg hefur hækkað hjá öllum aðilum eða um allt að 8,2%.
Nánar er sagt frá verðkönnun ASÍ hér.

Deila