Translate to

Fréttir

Yfirlýsing miðstjórnar ASÍ vegna kaupréttarsamninga

Verða þeir hvítþvegnir? Verða þeir hvítþvegnir?

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands sendi í gær frá sér yfirlýsingu um kaupréttarsamninga æðstu stjórnenda fjármálastofnana og þau ótrúlegu örþrifaráð sem þessir stjórnendur virðast hafa gripið til í aðdragandanum að falli bankanna til að komast hjá afleiðingunum af eigin græðgi og siðblindu.
Verkalýðshreyfingin hefur lengi gagnrýnt harðlega misrétti og afsiðun sem eru óhjákvæmilegir fylgifiskar græðgisvæðingarinnar sem hefur tröllriðið samfélaginu undanfarin ár. Ekkert lýsir afsiðuninni betur en að stjórnendur skuli hafa, þegar í óefni stefndi, reynt að afnema eigin ábyrgð á lánum vegna hlutabréfakaupa, peningamaskínunni sem framleitt hafði hvern milljarðinn á fætur öðrum þeim til handa. Alþýðan sem skuldar þessum sömu stofnunum og greiðir himinháa vexti átti svo að taka skellinn.


Yfirlýsing miðstjórnar ASÍ fer hér á eftir.

"Á miðstjórnarfundi Alþýðusambands Íslands í dag var fjallað um kaupréttarsamninga æðstu stjórnenda í bönkum og öðrum fjármálastofnunum. Miðstjórn ASÍ lýsir furðu og hneykslan sinni á því hvernig mál gengu fyrir sig í aðdraganda að falli bankanna. Alþýðusambandið hefur í mörg ár gagnrýnt fyrirkomulag kaupréttarsamninga og leggur ASÍ þunga áherslu á að þessi mál sem upp hafa komið síðustu daga verði rannsökuð ofan í kjölinn og hið sanna dregið fram í dagsljósið. Allt annað eykur aðeins á þá þungu reiðiöldu sem kraumar nú í samfélaginu og er ekki á bætandi.

Alþýðusambandið lítur á það sem sitt hlutverk að ganga eftir því að fram fari vandað og fordómalaust uppgjör á því hvers vegna þjóðin er komin í þessa stöðu. Gera þarf upp allar hliðar þessa máls. Hlutverk fjármálastofnana, ríkisstjórna, Seðlabankans og allra annarra megingerenda í atburðarásinni. Lagt er til að fengnir verði óháðir sérfræðingar í þetta verkefni, bæði innlendir og erlendir.

Herða þarf regluverk banka og fjármálafyrirtækja gagnvart ráðgjöf til einstaklinga, auka eftirlit og heimildir eftirlitsaðila. Byggja þarf upp traust á Seðlabanka Íslands og stjórn hans. Í því sambandi er mikilvægt að tryggja fagmennsku í stjórn bankans og taka verður til gagngerar endurskoðunar hvernig staðið er að ráðningu bankastjóra."

Deila