Fundur stjórnar og trúnaðarráðs
Fundur stjórnar og trúnaðarmannaráðs Verk Vest verður haldinn miðvikudaginn 17. september nk. kl 20:00 í húsi félagsins Pólgötu 2 á Ísafirði.
Dagskrá.
- 1. Kosning í kjörnefnd Verk Vest
- 2. Kjarasamningur SGS við sveitarfélögin - samningsumboð
- 3. Beitningarsamningurinn
- 4. Staða efnahagsmála - endurskoðunarákvæði kjarasamninga
- 5. Endurhæfingarsjóður
- 6. Önnur mál.
Gestur fundarins er Gylfi Arnbjörnsson sem mun fara yfir stöðu efnahagsmála, endurskoðunarákvæði kjarasamninga ásamt þeirri vinnu sem er í gangi vegna endurhæfingarsjóðs.