Translate to

VIRK - endurhæfing

Ársfundur VIRK 2012

Ársfundur VIRK verður haldinn fimmtudaginn 12. apríl 2012 kl. 8:00 til 12:00 í Hörpu í salnum Norðurljós.  Dagskráin er tvískipt.  Fyrri hluti fundarins inniheldur fræðandi erindi og hefst hann með ávarpi Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra kl. 8:15.  Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK mun síðan fara yfir starfsemi VIRK á síðastliðnu ári og Ingibjörg Jónsdóttir prófessor við Institute of Stress Medicine í Gautaborg mun halda erindi um reynslu og niðurstöður nýjustu rannsókna varðandi forvarnir og starfsendurhæfingu vegna kulnunar og síþreytu á vinnustöðum.   Kaffihlé verður frá kl. 10:30 til 11:00 og að því loknu hefjast hefðbundin ársfundarstörf.  Nánari upplýsingar um dagskrá ársfundarins er að finna hér.

Ársfundurinn er öllum opinn og einnig er hægt að taka einungis þátt í fyrri hluta fundarins frá kl. 8:00 - 10:30.  Nauðsynlegt er að skrá þátttöku og það er hægt að gera hér (sjá einnig skráningarmöguleika hér til hægri á heimasíðunni).
Sjá nánar á virk.is


Deila