Fræðsludagar ráðgjafa í janúar
Mánaðarlega eru haldnir fræðsludagar fyrir ráðgjafa VIRK í
starfsendurhæfingu. Í janúar kom fagfólk frá geðsviði Reykjalundar til
okkar og hélt námskeiðið „hjálp til sjálfshjálpar". Á námskeiðinu var
kynnt handbók um hugræna atferlismeðferð, notkun hennar við þunglyndi og
kvíða, virkni og hreyfing, hugsanir og líðan, hugsanaskrá og bakslagsvarnir.
Handbókin er aðgengileg almenningi á veraldarvefnum og getur nýst mörgum sem
sjálfshjálparefni við þunglyndi og kvíða. Handbókin kemur sér sérstaklega
vel á landssvæðum þar sem aðgengi að fagfólki er takmarkað. Ráðgjafar
VIRK geta nú stutt betur við þá einstaklinga sem nýta sér þetta efni.
Sjá nánar á virk.is
Sjá nánar á virk.is