Translate to

VIRK - endurhæfing

Hvernig geta stjórnendur tekist á við of mikla fjarveru frá vinnu?

Ástæður þess að starfsfólk er fjarverandi frá vinnu á launum eru margvíslegar eins og vegna eigin veikinda, veikinda barna, aldraðra ættingja, andláts náinna ættingja og skólafría barna, svo dæmi séu tekin. Til þess að stjórnendur geti áttað sig á launaðri fjarveru starfsfólks og gert viðeigandi ráðstafanir þar að lútandi er nauðsynlegt að hafa yfirsýn yfir ástæður fjarverunnar og vinna með fjarverutölur.

Á næstu vikum munu birtast á heimasíðu VIRK samtals átta myndbönd um hagnýt ráð sem fjalla um það hvernig stjórnendum í samvinnu við starfsfólk hefur tekist að draga úr fjarveru frá vinnu. Í myndböndunum er rætt er við stjórnendur, starfsfólk og trúnaðarmenn. 

Sjá nánar á virk.is 

Deila