Myndbönd um fjarverustefnur í skóla og leikskóla
Bakkaskóli í Fredericia er venjulegur danskur grunnskóli. Á síðasta ári
voru 35 af 45 kennurum skólans aldrei veikir. Þann árangur má rekja til
fjarverustefnu vinnustaðarins þar sem áhersla er lögð á forvarnir, umhyggju
starfsfólksins gagnvart hvert öðru, gagnkvæmt traust og að skólastjórinn er
sýnilegur. Stofnaður var þriggja manna starfshópur sem fylgist með líðan
samstarfsfólksins og reynt er að grípa inn í áður en starfsmaður verður veikur.
Í myndbandi númer 5 má sjá hvernig skólastjórinn
og trúnaðarmaður lýsa ferlinu.
Á leikskólanum í Spodsbjerg snerist vandamálið um það að svo til daglega var einhver starfsmaður fjarverandi frá vinnu. Þar hefur verið unnið með fjarvistastefnu í níu mánuði og starfsfólk hefur tekið umræðuna um skilgreiningu á veikindum og fjarveru. Í myndbandi 6 er meðal annars fjallað um verkefnið „Raunveruleg umhyggja" sem sett var á laggirnar í leikskólanum.
Sjá nánar á virk.is