Starfsmenn og ráðgjafar VIRK
Í byrjun árs 2012 störfuðu á skrifstofu VIRK 16 starfsmenn í ríflega 13 stöðugildum. Um er að ræða fjölbreyttan hóp sérfræðinga á mismunandi fagsviðum auk starfsmanna á skrifstofu og við bókhald og umsýslu fjármála. Hér á heimasíðunni má sjá upplýsingar um starfsmenn VIRK.
Í byrjun ársins 2012 störfuðu 34 ráðgjafar í um 29 stöðugildum á vegum VIRK fyrir stéttarfélög um allt land. Lista yfir alla ráðgjafa VIRK er að finna hér. Í heild starfa því um 50 einstaklingar á vegum VIRK annað hvort sem starfsmenn eða ráðgjafar hjá stéttarfélögum um allt land. Umfangið hefur því vaxið mikið og kallað á breytta skipulagningu á ábyrgðarsviðum og verkefnum starfsmanna.
Sjá nánar á virk.is