Translate to

Sjúkradagpeningar

Upplýsingar um réttindi

Rétt til styrkveitinga úr sjóðnum eiga þeir sem fullnægja eftirtöldum skilyrðum.

  1. Einungis þeir sem sannanlega greiða eða er greitt af til sjóðsins og verið er að greiða fyrir til sjóðsins þegar réttur til aðstoðar myndast.
  2. Þeir sem greidd hafa verið af til sjóðsins iðgjöld skv. kjarasamningum í a.m.k. 6 mánuði.
  3. Hafi umsækjandi verið fullgildur aðili í sjúkrasjóði annars félags innan ASÍ þar til hann byrjar greiðslu til sjóðsins.
  4. Hafi iðgjöld til sjúkrasjóðs ekki verið greidd vegna sjóðfélaga, en hann getur fært sönnur á að félagsgjöld til félagsins hafi samkvæmt reglulega útgefnum launaseðlum verið dregin af launum hans síðustu 6 mánuði, skal hann njóta réttar eins og iðgjöld til sjúkrasjóðs hafi verið greidd.
  5. Réttur til bóta miðast við greiðslu iðgjalds. Óheimilt er að skapa sér rétt til bóta með greiðslu iðgjalda aftur í tímann. 
  6. Slysadagpeningar skv. grein þessari greiðast ekki vegna bótaskyldra slysa og atvinnusjúkdóma, þ.m.t. bifreiðaslysa, þar sem bætur greiðast skv. skaðabótalögum.