Kjaramál
Verkalýðsfélag Vestfirðinga á aðild að kjarasamningum fyrir landverkafólk, verslunar- og skrifstofufólk, sjómenn, byggingamenn, vélstjóra í frystihúsum og verksmiðjum, starfsfólk á veitinga-, gisti-, þjónustu- og greiðasölustöðum, starfsfólk í fiskeldi, beitninga- og netagerðarfólk, starfsfólk sveitarfélaga, ríkis, t.d. starfsfólk á heilbrigðisstofnunum og hjá vegagerðinni. Þá hefur félagið gert séstakan samning um kjör starfsmanna Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum, auk samninga við einstök fyrirtæki með gerð vinnustaðasamninga.
HAFÐU SAMBAND HAFIR ÞÚ EFASEMDIR UM AÐ ÞÚ FÁIR GREIDD RÉTT LAUN!
Hægt er að senda tölvupóst á postur@verkvest.is eða hafa samband símleiðis í síma 456 5190.
Einnig er hægt að tilkynna brot nafnlaust á labour.is
Hægt er að skoða tiltæka kjarasamninga með því að smella hér og síðan á viðeigandi tengla. Einnig eru launatöflur aðgengilegar hér og hvort tveggja er hægt að prenta út eða vista í tölvunni hjá sér.
Nokkrir gagnlegir punktar sem vert er að hafa í huga.
- Geymdu launaseðla.
- Launaseðill staðfestir réttindi þín, hann er sönnun fyrir vinnuframlagi og lauagreiðslu.
- Á launaseðlum kemur fram, hvaða kaup þú hefur, hvaða orlofsrétt þú átt og hvað hefur verið dregið af þér í skatta, lífeyrissjóð og félagsgjöld.
- Kjarasamningur stéttarfélagsins tryggir þér lágmarksréttindi og lágmarkslaun.
- Lágmarkstaxti er ekki lögmál, alltaf má borga betur.
- Allir starfsmenn eiga rétt á skriflegum ráðningarsamningi.
- Fyrir iðgjald til stéttarfélags færðu þjónustu frá stéttarfélaginu.
- Þú öðlast rétt til sjúkradagpeninga frá stéttarfélaginu samkvæmt reglum þess.
- Þú öðlast rétt til að nota orlofshús stéttarfélagsins samkvæmt reglum þess.
- Þú öðlast rétt til að sækja námskeið á vegum stéttarfélagsins samkvæmt reglum þess.
- Þú getur tekið þátt í félagslífi hjá stéttarfélaginu.
- Nauðsynlegt er að staðfesta aðild að stéttarfélagi.
- Jafnaðarkaup er ekki til í kjarasamningum.
- Verktakar njóta ekki sama réttar og launafólk.
- Leitið til stéttarfélags ef þið eruð í vafa um launakjör og réttindi
Greinar/samantektir um kjaramál
Athyglisverðir dómar
- https://www.ruv.is/frett/2022/02/11/flugvirki-lagdi-rikid-i-deilu-um-ferdatima-i-vinnuferd
- Ferðatími í vinnuferð telst til launa ríkisstarfsmanna 11.02.2022
- Menn í vinnu vs. ASÍ (MLF)
- Menn í vinnu vs. starfsmenn
- Félagsdómur vegna trúnaðarmanns hjá Icelandair 25.10.2022
- Dómur Landsréttar vegna uppsagnar þungaðrar konu 2022
- Héraðsdómur um starfsmann sem varð fyrir líkamstjóni í starfi við umönnun 2022
- Evrópudómstóllinn um fyrningu orlofs - frétt af vef ASÍ
Lög, frumvörp og reglugerðir til hliðsjónar
- Frumvarp til laga um útlendinga
- Covid-19 reglugerð nr.38/2022 dags.25.01.2022
- Reglur ríkisskattstjóra um skattmat vegna tekna tekjuárið 2021
- Kennara dæmdar bætur vegna ólögmætrar uppsagnar (feb.2022)