Skattar og ójöfnuður - íslenskur raunveruleiki!
Í aðdraganda Lífskjarasamninga krafðist Alþýðusambandið breytinga á tekjuskattkerfinu. Skattbyrði hinna tekjulægstu hafði aukist um áratugabil og dregið úr kaupmáttaraukningu launafólks.
Í nýrri skýrslu ASÍ Skattar og ójöfnuður - Réttlátara og skilvirkara skattkerfi er sjónum beint að skattlagningu fjármagns og auðlindagjöldum á Íslandi. Veikleikar í íslensku skattkerfi eru dregnir fram og bent á glufur sem nýttar eru til skattasniðgöngu. Stjórnvöld standa frammi fyrir stórum áskorunum í ríkisfjármálum og fyrirséð að heilbrigðis- og velferðarútgjöld muni aukast samfara öldrun þjóðar.
Með einföldum úrbótum á íslensku skattkerfi væru tekin markviss skref í átt að réttlátara og skilvirkara skattkerfi og sterkari tekjustofnum hins opinbera.
Helstu niðurstöður skýrslunnar eru:
- Á Íslandi bera fjármagnstekjur mun lægri skattbyrði en launatekjur. Skattbyrði þeirra allra tekjuhæstu lækkar eftir því sem tekjur aukast. Þetta er andstætt markmiði framsækinna skattkerfa, sem byggir á því að skattbyrði hækkar eftir því sem tekjur aukast.
- Þegar skattur á fjármagnstekjur er lægri en skattur á laun skapast hvatar fyrir einstaklinga í eigin atvinnurekstri til að telja laun fram sem fjármagnstekjur, svokallaður tekjutilflutningur (e. income shifting). Ef regluverk skattkerfisins kemur ekki í veg fyrir það brýtur í bága við hlutleysissjónarmið. Hlutleysi skattkerfis gerir að verkum að ákvarðanir eru ekki teknar út frá skattalegu sjónarmiði.
- Tekjutilflutningur felst í því að launatekjur eru ranglega skráðar sem fjármagnstekjur. Skýrar vísbendingar eru um að skattasniðganga í formi tekjutilflutnings viðgangist hér á landi. Það á aðallega við um atvinnurekendur með háar tekjur.
- Ólíkt Norðurlöndunum hafa Íslendingar ekki brugðist við framangreindum veikleikum. ASÍ telur að reglur sem takmarka tekjutilflutning myndu auka árlegar skatttekjur um á bilinu 3-8 milljarða króna
- Veikleikar í skattkerfinu ýta undir ójöfnuð í samfélaginu og eignamisskiptingu. Afnám auðlegðarskatts dró úr tekjujöfnunarhlutverki skattkerfisins. Innleiðing á skynsamlega útfærðum stóreignaskatti á verulega miklar eignir myndu auka tekjur ríkissjóðs um meira en 20 milljarða á ári og jafnframt jafnaskattbyrði eftir hækkandi itekjum.
- Móta þarf skýran ramma um auðlindagjöld. Gjaldheimta þarf að ná yfir nýtingu ólíkra auðlinda, t.d. fiskveiði, fiskeldi, framleiðslu raforku og nýtingu sem felst í þjónustu við ferðamenn. Færa þarf gjaldheimtu auðlindagjalda undir eitt ráðuneyti.
- Veiðigjöld voru 4,9 milljarðar á síðasta ári en mat á auðlindarentu fiskveiða fyrir árin 2008-2019 er á bilinu 30-70 milljarðar á ári en fyrir 2017 var rentan þó metin 15 milljarðar..
- Ráðast þarf í markvissar aðgerðir gegn skattsvikum og undanskotum sem áætlað er að kosti samfélagið tugi milljarða ár hvert.