Translate to

Fréttir

Trúnaðarmenn Verk Vest á námskeiði

Trúnaðarmenn hjá Verk Vest luku námslotu 6 hjá Félagsmálaskóla Alþýðu sem haldin var í Heydal í Mjóafirði við Djúp. Leiðbeinendur í 6 lotu voru þau Róbert Farestveit hagfræðingur ASÍ sem fjallaði um helstu hagfræðihugtök í daglegu lífi og í kjarasamningagerð, s.s. kaupmátt launa, mun á hlutfallslegri hækkun eða krónutöluhækkun.  Bergþóra Guðjónsdóttir sem kynnti helstu hugtök í samningtækni. Lögð er áhersla á eðli og markmið samninga, grunnatriði samningagerðar, hvernig hún er notuð í daglegu lífi við úrlausn mála sem koma inn á borð trúnaðarmanna. 

Deila