Um borð í Páli Pálssyni Ís 102  á sjómannadegi
Um borð í Páli Pálssyni Ís 102 á sjómannadegi
Samkvæmt kjarasamningum þá hækkuðuð fæðispeningar til sjómanna um 7,2% frá og með 1. júní 2010. Þetta hefur verið leiðrétt í kaupgjaldskrá sjómanna hér á vefnum.

Fæðispeningar frá 1.júní eru því eftirfarandi fyrirhvern dag:

A. Skuttogarar, loðnuskip og sambærileg skip........kr. 1.388
B. Önnur skip stærri en 100 brl. sem ekki eru
    tiltekin í lið A..............................................kr. 1.103
C. Skip 12 - 100 brl..........................................kr.    836
Heimild: Hagstofa Íslands / Seðlabankinn
Heimild: Hagstofa Íslands / Seðlabankinn

Þrátt fyrir samfellda styrkingu krónunnar frá áramótum bólar enn lítið á verðlækkunum á innfluttum neysluvörum. Forsvarsmenn verslunarinnar hafa fullyrt að verslunin hafi almennt tekið á sig afkomuskerðingu vegna veikra stöðu krónunnar.  En nú þegar krónan hefur styrkst þá er ekki að sjá að verð lækki sem nemur styrkingunni.


Sé verðþróun innfluttra vara skoðuð frá ársbyrjun 2008 þegar krónan tók að veikjast er bein tenging hvernig verðlag á helstu flokkum innfluttra neysluvara hækkaði framan af nokkurn veginn samhliða veikara gengi krónunnar. En það furðulega er að þrátt fyrir 25 - 30% styrkingu krónunnar þá hefur vöruverð ýmist haldið áfram að hækka eða nánast staðið óbreytt undanfarna mánuði.

...
Meira
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að lækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 5%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 1. júlí 2010.
Fjölskyldur félagsmanna áttu góðan dag í Dýrafirðinum
Fjölskyldur félagsmanna áttu góðan dag í Dýrafirðinum
« 1 af 3 »
Fjölskyldudagur Verk Vest var haldinn í ágætu veðri á víkingasvæðinu á Þingeyri laugardaginn 26.júní síðast liðinn. Félagsmenn og fjölskyldur þeirra áttu ánægjulega samverustund við ýmsa leiki sem íþróttafélagið Höfrungur á Þingeyri stóð fyrir. Þá bauð félagið þeim sem vildu upp á siglingu í víkingaskipinu Vésteini og þáðu nokkrir að leggjast í víking út á Dýrafjörðinn. Félagið gaf öllum þeim sem sóttu fjölskyldudaginn höfuðskjól "Buff" með merki félagsins og að vanda var einnig boðið upp á grillaðar pylsur og gos. 
24. júní 2010

Vinnuskólinn í heimsókn

Hópur hressra ungmenna úr vinnuskóla Ísafjarðar í fundarsal Verk Vest
Hópur hressra ungmenna úr vinnuskóla Ísafjarðar í fundarsal Verk Vest
« 1 af 3 »
Vinnuskóli Ísafjarðarbæjar er nú kominn á fullt og má sjá ungmenni um allan bæ við hin ýmsu störf. Mest ber á vinnu við snyrtingu umhverfisins svo sem hreinsun opinna svæði ásamt garðslætti að ógleymdum Morranum. En vinnuskólinn er ekki bara vinna, hann áað vera sambland af vinnu, leik og námi. Það hefur tekist mjög vel hjá Ísafjarðarbæ að tvinna þessu saman og eiga bæjaryfirvöld hrós skilið fyrir hve vel er staðið að þessum málaflokki sem vinnuskólinn er.

Einn liður í náminu er fræðsla um vinnumarkaðinn og hefur Verkalýðsfélag Vestfirðinga haft veg og vanda af þeirri kynningu. Í dag komu fyrstu hóparnir á kynnigu hjá félaginu og var ekki annað að heyra og sjá en krakkarnir væru áhugasöm um það sem helst brennur á þeim varðandi kaup og kjör. Fóru þau út í góða veðrið margs vísari um réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Verk Vest þakkar þessum frábæru krökkum fyri komuna, og er óhætt að segja að framtíðin sé björt þegar þetta unga fólk tekur enn meiri þátt í samfélaginu okkar. 
Vefumsjón