Rauðisandur. Mynd. ljosbrot.is
Rauðisandur. Mynd. ljosbrot.is

Minnum á áður auglýsta dagsferð á Látrabjarg og Rauðasand þann 12. júní. Farið verður með rútu frá Landsbankaplaninu á Ísafirði kl. 09:00 og ekið sem leið liggur á Látrabjarg. Eftir það verður farið yfir á Rauðasand sem þykir einn fegursti staður landsins.Sameiginlegur kvöldverður er svo fyrirhugaður á Hótel Flókalundi áður en haldið verður af stað heim á leið. Félagar utan Ísafjarðarbæjar eru sérstaklega hvattir til þess að skrá sig með í för.


Verð kr. 6000-                                                                      
Örfá laus sæti.                                                                   
Skráning hjá VerkVest í síma: 456 5190. Síðasti skráningardagur er 10.júní.                  


Verkalýðsfélag Vestfirðinga sendir

sjómönnum og fjölskyldum

þeirra árnaðaróskir

á hátíðisdegi sjómanna.

2. júní 2010

Launahækkanir 1. júní

Í gær, 1. júní, kom til framkvæmda lokaáfangi hækkana samkvæmt kjarasamningum ASÍ félaga við Samtök atvinnulífsins, ríkið og sveitarfélögin. Launataxtar verkafólks hækkuðu þá um kr. 6.500 á mánuði og ákvæðis- og bónusgreiðslur um 2,5%.


Nýju taxtarnir eru komnir á vefinn hjá okkur og er hægt að nálgast þá með því að smella á Kjaramál og síðan Kaupgjaldsskrár í dálkinum hér til vinstri.

Pottarnir alltaf vinsælir hjá krökkunum!
Pottarnir alltaf vinsælir hjá krökkunum!
Þrátt fyrir algjöra sprengingu í umsóknum um sumarbústaði hjá Verk Vest fyrir sumarið þá eru ennþá nokkrar vikur lausar til umsókna. Tímabilin sem eru laus hafa verið sett inn á síðuna undir olofshús og bústaðir. Þeir sem vilja tryggja sér bústaði eru beðnir að hafa samband við skrifstofu félagsins sem fyrst í síma 4565190 eða á postur@verkvest.is .
Helgi Ólafsson fer yfir málin með starfsfólki
Helgi Ólafsson fer yfir málin með starfsfólki

Fulltrúar Verk Vest ásamt túlkum héldu fund með starfsólki Eyrarodda ehf. á Flateyri í gær. Farið var yfir hvernig félagið myndi aðstoða starfsfólk sem ekki hafði fengið greidd orlofslaun á réttum tíma. En eins og fram hefur komið í fréttum hefur Eyraroddi ehf. óskað eftir greiðslustöðvun og fengið tilskilinn frest til að endurskipuleggja rekstur með það að leiðarljósi að halda áfram vinnslu á Flateyri. Á fundinum var starfsfólki tilkynnt að að Verk Vest myndi aðstoða fólk við að gera kröfu til ábyrgðarsjóðs launa vegna ógreiddra orlofslauna hjá Eyrarodda ehf. Einnig var tilkynnt að félagið myndi lána hverjum og einum þá orlofseign sem viðkomandi á inni hjá fyrirtækinu til að brúa bilið þar til ábyrgðarsjóður launa hefur tekið kröfuna fyrir og afgreitt.  

  

Vefumsjón