Kröfugangan á Ísafirði.
Mynd. BB.IS
Kröfugangan á Ísafirði. Mynd. BB.IS
Að vanda var góð þátttaka í kröfugöngu og hátíðarhöldum á 1.maí víða á Vestfjörðum. Á Ísafirði kom fólk saman við skrifstofu verkalýðsfélaganna þaðan sem gengið var fylktu liði niður í Edinborgarhúsið með lúðrasveitina í broddi fylkingar. Í Edinborgarhúsinu var að vanda boðið upp á hefðbundna hátíðardagskrá, en aðalræðumaður dagsins var Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ. En í ræðu sinni kom Gylfi inn á það dugleysi og skammsýni sem einkennt hafði alla hugsun alþingismanna við endurreisn íslensks efnahags- og atvinnulífs.
...
Meira

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn laugardaginn 8. maí kl.11:00 í stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði 4 hæð.

Dagskrá:

  • 1. Setning fundarins
  • 2. Kosning starfsmanna fundarins
  • 3. Skýrsla stjórnar.
  • 4. Kynntur ársreikningar starfsárið 2009.
  • 5. Breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs
  • 6. Ákvörðun félagsgjalds og hlutfall í vinnudeilusjóð
  • 7. Lögð fram tillaga um laun stjórnar.
  • 8. Kosning fulltrúa á ársfund Lifeyrissjóðs Vestfirðinga
  • 9. Önnur mál.

Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn og nýta málfrelsis, tillögu- og atkvæðisrétt.  Að fundi loknum verður boðið upp á veitingar.

Frá 1.maí kröfugöngu á Ísafirði
Frá 1.maí kröfugöngu á Ísafirði


Í dag eru 15 þúsund einstaklingar á atvinnu. Getum við sætt okkur við það?

Við viljum vinna ! 



Tökum öll þátt í kröfugöngu stéttarfélaganna.


 

...
Meira
28. apríl 2010

Orlof og orlofsuppbót 2010

Samkvæmt 4. gr. orlofslaganna er orlofstímabilið frá 2. maí - 15. september og skal orlof veitt í einu lagi á tímabilinu. Þó er heimilt samkvæmt kjarasamningum stéttarfélaganna að stytta orlofið á tímabilinu þannig að aldrei verði veittir færri en 14 dagar samfellt á sumarorlofstímabilinu, enda liggi sérstakar rekstrarástæður að baki. Í því samhengi er rétt að benda á að sé orlof tekið utan ofangreinds orlofstímabils að ósk atvinnurekanda þá lengist orlofið um 25%. ...
Meira
Kristjana, Gunnar Karl, Guðmundur Bjarnason, maður Kristjönu, og Friðrik Sigurðsson (Iddi)
Kristjana, Gunnar Karl, Guðmundur Bjarnason, maður Kristjönu, og Friðrik Sigurðsson (Iddi)
« 1 af 2 »
Gunnar Karl Gunnarsson sem verið hefur umsjónarmaður orlofsbyggðar stéttarfélaganna í Flókalundi óskaði fyrr í vetur eftir lausn frá störfum sem umsjónarmaður. Ákveðið hefur verið þau sem hafa leyst Gunnar Karl af undanfarin sumur verði ráðin í hans stað. Nýtt umsjónarfólk ætti að vera mörgum Vestfirðingum að góðu kunn en þau eru Kristjana Jónatansdóttir, dóttir Tana í ríkinu, og Friðrik Sigurðsson, betur þekktur sem Iddi. Ekki dugði minna en tveir umsjónarmenn til að sjá um byggðina enda Gunnar Karl tveggja manna maki hið minnsta. Nýtt umsjónarfólk mun hefja störf við byggðina frá og með 1.maí, en ráðgert er að opna orlofsbyggðina þann 21.maí nk. þ.e. um Hvítasunnuna. 
Vefumsjón