Frá starfsfræðslunámskeiði á vegum Verk Vest
Frá starfsfræðslunámskeiði á vegum Verk Vest

Starfsfræðslusjóðirnir Landsmennt og Sveitamennt sem Verkalýðsfélag Vestfirðinga er aðili að hafa ákveðið að auka við réttindi frá og með 1.júlí næst komandi. Breytingin felst í viðbót við einstaklingsstyrki fyrir eitt samfellt námskeið eða nám sem fara þá eftir reglum sjóðsins. Félagsmenn sem ekki hafa nýtt sér sinn rétt síðustu þrjú ár eiga rétt á styrk allt að kr.132.000 fyrir eitt samfellt námskeið/nám. Þessar breytingar taka gilda frá og með 1.júli 2010 og gilda fyrir námskeið/nám sem hefjast eftir þann tíma. 

Frá víkingasvæðinu á Þingeyri
Frá víkingasvæðinu á Þingeyri
« 1 af 2 »
Fjölskyldudagurinn verður að þessu sinni á víkingasvæðinu á Þingeyri laugardaginn 26.júní milli kl.14.00 og 17.00. Á þingeyri er búið að byggja upp skemmtilegt útivistarsvæði í víkingastíl og er svæðið myndað úr hringhleðslu úr grjóti. Þar er gott svæði til leikja og einnig grillaðstaða, svið, bekkir og borð. Þarna ætlum við að grilla, syngja saman og fara í ýmsa skemmtilega leiki. Fyrir þá sem vilja verður boðið upp á siglingu með víkingaskipinu Vésteini. Einnig er rétt að minna á strandblakvöllinn góða og frábæra Sundlaug í næsta nágreni við víkingasvæðið á Þingeyri. Þannig að allir í fjölskyldunni ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og eiga góðan dag í góðra vina hópi á laugardaginn.  
Hugmyndir um frystingu elli- og örorkulífeyris er ríkisstjórninni til mikilla vansa
Hugmyndir um frystingu elli- og örorkulífeyris er ríkisstjórninni til mikilla vansa
« 1 af 2 »

Undirbúningur að gerð fjárlaga fyrir árið 2011 er í fullum gangi. Gatið sem þarf að fylla er stórt og því óhjákvæmilegt að draga verður úr útgjöldum og hagræða í ríkisrekstrinum. Miðstjórn ASÍ telur mikilvægt við þessar aðstæður að haft sé náið samráð við verkalýðshreyfingunaum forgangsröðun í rekstri ríkisins, með það að markmiði að verja grunnstoðir velferðarkerfisins og lágtekjuhópa.


Úr fjármálaráðaneytinu hafa borist þau skilaboð að til standi að frysta elli- og örorkulífeyri þriðja árið í röð. Þeirri leið hafnar miðstjórn Alþýðusamband Íslands alfarið. Elli- og örorkulífeyrisþegar eru margir hverjir meðal þeirra sem höllustum fæti standa í þjóðfélaginu og lífeyrir frá almannatryggingum er veigamikill hluti lífeyrisréttinda launafólks á almennum vinnumarkaði. Það verður aldrei samþykkt að ráðist verði að þeim hópi með þessum hætti, á sama tíma og opinberir starfsmenn búa við ríkistryggð lífeyrisréttindi.


Í forsendum fjárlaga er einnig unnið út frá þeirri hugmynd að frysta laun ríkisstarfsmanna á næsta ári. Innan vébanda ASÍ eru 12 þúsund opinberir starfsmenn, margir í láglaunastörfum. Miðstjórn ASÍ hafnar því að samningsrétturinn sé tekinn af okkar fólki með þessum hætti. Ríkisstjórnin verður að leita raunhæfari leiða til að ná endum saman en níðast á þeim er síst skyldi.
Nóg er nú samt.
Á miðstjórnarfundi ASÍ þann 16.júní síðast liðinn var samþykkt að slíta samstarfi við ríkisstjórnina vegna hins svokallaða stöðugleikasáttmála. Kornið sem fyllti mælinn voru nýjustu svik ríkisstjórnarinnar um aðkomu ríkisins að starfsendurhæfingarsjóði launþega og atvinnurekenda. Í stöðugleikasáttmálanum hafði verið samþykkt að fresta aðkomu ríkissjóðs að starfsendurhæfingarsjóði til ársins 2010 vegna bágrar stöðu í ríkisfjármálum. Nú er ljóst að ríkisstjórnin ætlar sér ekki að standa við þau loforð eins og kom fram í störfum Alþingis nú fyrir þinglok.


"Það er engin launung að væntingar miðstjórnar ASÍ til lögbindingar þessara ákvæða var síðasta hálmstráið sem rökstuddi aðild ASÍ að stöðugleikasáttmálanum. Nú er sú von að engu orðin og lýsir miðstjórn ASÍ því formlega yfir að engar forsendur eru fyrir aðkomu þess að frekari samstarfi á þeim grunni."  asi.is

...
Meira
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ og Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA undirrita samkomulag um vinnustaðaskilríki í Egilshöll í gær, með torkennilegian höfuðbúnað.
Mynd: Vefur ASÍ.
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ og Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA undirrita samkomulag um vinnustaðaskilríki í Egilshöll í gær, með torkennilegian höfuðbúnað. Mynd: Vefur ASÍ.
Frétt af vef ASÍ: 

Í gær undirrituðu fulltrúar ASÍ og SA samkomulag um vinnustaðaskilríki. Samkomulagið byggir á lögum nr. 42/2010 um sama efni sem samþykkt voru á Alþingi 11. maí sl. Lögin veita heildarsamtökum vinnumarkaðarins heimild til að semja um hvaða starfsgreinar falli undir gildissvið laganna hverju sinni.


Samkomulagið er mikilvægur áfangi í baráttunni fyrir því að tryggja að atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum. Þannig er því m.a. ætlað að hindra félagsleg undirboð á íslenskum vinnumarkaði.

...
Meira
Vefumsjón