Frá aðalfundi 15.maí 2010
Frá aðalfundi 15.maí 2010
« 1 af 2 »

Aðalfundur orlofsbyggðarinnar í Flókalundi var haldinn laugardaginn 15.maí sl. Farið var yfir verkefni sem hafa verið framkvæmd í byggðinni, bæði viðhald og nýframkvæmdir. Þykir svæðið hafa tekið miklum stakkaskiptum eftir að sláttutraktor var keyptur til að hirða opin svæði, þá hefur umhverfi sundlaugarinnar verið snyrt og lagfært þannig að mikill sómi er af og samþykkt að rýmka opnunartíma sundlaugar um helgar. Ákveðið var að fara í nokkrar stærri viðhaldsframkvæmdir fyrir sumarið eins og t.d. málun á þökum og lagfæringar vega og stíga ásamt minniháttar viðhaldi á húsum og búnaði. Samþykkt var að setja upp lyklaskápa við öll hús til þæginda fyrir dvalargesti og umsjónarfólk. Umgengni gesta hefur verið til mikillar fyrirmyndar en þó má alltaf gera betur, en það er allra hagur að gengið sé vel um hús og búnað byggðarinnar.

« 1 af 4 »
Verkalýðfélag Vestfirðinga hefur gert samning við Gistihús Keflavíkur ehf. um afsláttarkjör á gistingu til félagsmanna. Gisthúsið er staðsett á gamla varnarsvæðinu í Keflavík og er boðið upp á geymslu á bílum og akstursþjónustu út á Keflavíkurflugvöll.  Félagsmenn panta gistinguna beint hjá Gistihúsinu en þurfa að framvísa félagsskírteyni við innritun. Samningurinn tekur gildi frá og með 15.maí næst komandi og gilda verðin í eitt ár. Nánari upplýsingar um verð og þjónustu má finna hér, eins er hægt að kynna sér þjónustuna á www.bbkeflavik.is .
Frá aðalfundi Verk Vest
Frá aðalfundi Verk Vest
Á aðalfundi Verk Vest sem var haldinn laugardaginn 8.maí sl. var starfsárið sem lauk með aðalfundi gert upp. Lögð var fram skýrsla stjórnar ásamt reikningum félagsins til afgreiðslu eins og lög félagsins segja til um,  og var hvorttveggja samþykkt að loknum umræðum. Skýrsluna og reikningana er hægt að nálgast hér á skrifstofu félagsins en stefnt er að því að hvorutveggja verði einnig aðgengilegt hér á síðunni. Þá var einngi samþykktar breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs, en þar var verið að rýmka réttindi til félagsmanna. Ein helsta nýbreytni í reglugerðinni er niðurgreiðsla á tannlækniskostnaði félagsmanna. 



 

...
Meira
Séð inn Dýrafjörð. Mynd BB.IS
Séð inn Dýrafjörð. Mynd BB.IS

Á fundi stjórnar Verk Vest voru samgöngu- og byggðamál enn til umræðu. Tilefni umræðanna var sú ákvörðun að fresta gerð Dýrafjarðarganga og með þeim hætti viðhalda því óréttlæti sem viðgengist hefur í samgöngubótum milli norður og suðursvæðis Vestfjarða.  Stjórn félagsins hvetur Vestfirðinga sem og landsmenn alla að leggjast á ára og taka þátt í undirskriftasönunum til að þrýsta á um að Dýrafjarðargöng verði sett aftur inn á samgönguáætlun. 

...
Meira
Stjórn sjúkrasjóðs Verk Vest
Stjórn sjúkrasjóðs Verk Vest
Sjúkrasjóður Verkalýðsfélags Vestfirðinga hefur verið myndalegur í gjöfum til samfélgsmála á starfsárinu sem senn er að ljúka. Stjórn sjóðsins hefur alltaf haft það að leiðarljósi að styðja við og styrkja málefni á heimaslóðum sem gætu komið félagsmönnum Verk Vest og fjölskyldum þeirra til góða. Þá hefur sú hugsun einnig verið höfð að leiðarljósi að samfélagið á Vestfjörðum nyti einnig góðs af þessum gjöfum og styrkjum....
Meira
Vefumsjón