Vikan 2. - 9. júlí í Svignaskarði var að losna vegna forfalla. Svignaskarð er eftirsóttasti orlofsdvalarstaður félagsins og júlí vinsælasti mánuðurinn, svo vafalaust verða margir um hituna. 
Nú gildir reglan fyrstur kemur - fyrstur fær.

Upplýsingar á skrifstofu Verk-Vest í síma 456 5190. Póstfang postur@verkvest.is.
Fræðslusjóðirnir hafa reynst ómetanleg hjálp við íslenskunámskeið fyrir útlendinga. Myndin er af hópi sem útskrifaðist af slíku námskeiði hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða 2008.

Mynd: Fræðslumiðstöð Vestfjarða.
Fræðslusjóðirnir hafa reynst ómetanleg hjálp við íslenskunámskeið fyrir útlendinga. Myndin er af hópi sem útskrifaðist af slíku námskeiði hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða 2008. Mynd: Fræðslumiðstöð Vestfjarða.
Á föstudaginn samþykkti Alþingi frumvarp félagsmálaráðherra sem skyldar alla atvinnurekendur til að greiða samningsbundin gjöld í fræðslusjóði atvinnulífsins. Einstaka atvinnurekendur hafa neitað að greiða til fræðslusjóða á þeim forsendum að þeir væru ekki í samtökum atvinnurekenda og því undanþegnir greiðsluskyldu þar sem fræðslusjóðir væru ekki nefndir í lögunum um starfskjör launafólks.

Það er mikið fagnaðarefni að starfsmenntasjóðirnir skuli nú loks hafa verið festir í sessi með lögum, þegar liðin eru 10 ár frá því að fyrst var samið um framlög til þeirra á almenna vinnumarkaðnum.



...
Meira
Orlofsbyggðin í Flókalundi
Orlofsbyggðin í Flókalundi
« 1 af 2 »
Vikuna 18. - 25.júní er laust á Einarsstöðum á Héraði og í Orlofsbyggðinni í Flókalundi. Áhugasömum er bent á að snúa sér til skrifstofu félagsins um bókanir og frekari upplýsingar. Sími á skrifstofu er 4565190 og tölvupóstur er postur@verkvest.is einnig er rétt að benda á að hér til vinstri á síðunni er að finna tengil inn á laus tímabil í orlofsbustaði félagsins í sumar.
Frá Ölfusborgum
Frá Ölfusborgum
Vegna forfalla var að losna orlofsbústaður í Ölfusborgum dagana 18. - 25.júní nk. Þannig að nú gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær. Upplýsingar á skrifstofu félagsins í síma 4565190 eða postur@verkvest.is  
9. júní 2010

Samkomulag um verð á Ufsa

Ufsalöndun. mynd vf.is
Ufsalöndun. mynd vf.is
Náðst hefur samkomulag við LÍÚ um verð á Ufsa þegar afla er ráðstafað til eigin vinnslu eða afli seldur til skylds aðila. Samkomulagið sem gildir frá 15.júní 2010 - 1.janúar 2011 er tilkomið vegna bókana um fiskverð í síðustu kjarasamningum. Verðið skal endurskoðað reglulega eða að minnsta kosti  mánaðarlega og skulu verðbreytingar meðal annars hafa hliðsjón af þróun aflaverðs samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands.

Viðmið á verði fyrir ufsa í júní skal vera eftirfarandi:

Undirmál                 50 kr/kg
Að 1,7 kg                97 kr/kg
1,7 kg - 3,5 kg        119 kr/kg
3,5 kg og stærri      130 kr/kg
Vefumsjón